Skilvirk leið til að efla fleira starfsfólk

Þú eflir fleira starfsfólk
fyrir minni pening

Stutt markþjálfunarferli sem skila
varanlegum árangri

9,5+

Markþjálfunarferli Spiralup fá 9,5+ í meðaleinkunn

10x

Að jafnaði ná stjórnendur og starfsmenn framförum á tíu sviðum

Langvarandi

Eftirfylgnikannanir sýna varanleg – og hækkandi – áhrif 12 mánuðum seinna

Spiralup í hnotskurn

Markþjálfað á vinnustaðnum, augnliti til augnlits

Reynslumiklir markþjálfar
af hæsta gæðastigi

Skilvirkt skipulag sem lágmarkar rask og kostnað

Lotubundin innleiðing sem lýkur með árangursmati

Skýr mynd af árangrinum

Árangursmælikerfi Spiralup tryggir að þú getir sýnt fram á haldbæran árangur

Árangur viðskiptavina

Við hjá Isavia höfum átt frábært samstarf við Spiralup síðustu tvö ár. Við höfum boðið bæði stjórnendum og starfsfólki að sækja markþjálfun hjá þeim og árangurinn hefur verið einstakur. Þátttakendur hafa aukið hæfni sína og fengið dýrmæt verkfæri til að takast á við áskoranir í starfi.

Spiralup sér um allt skipulag, bókanir, breytingar og utanumhald, sem sparar okkur mikinn tíma. Einnig er það gríðarlegur kostur að þau koma inn á vinnustaðinn, sem gerir það auðveldara fyrir fólk að mæta og nýta sér þjónustuna. Við mælum eindregið með
Spiralup fyrir fyrirtæki sem vilja styrkja bæði stjórnendur og starfsfólk
.”

Brynjar Már Brynjólfsson
Mannauðsstjóri

Vilt þú auka afköst og ánægju starfsmanna þinna á skilvirkan hátt?

Þá er Spiralup klárlega
rétta lausnin fyrir þig

Stofnandi Spiralup

Sveinn hefur víðtæka reynslu af vinnustaðamarkþjálfun.

Árið 2018 vann hann með Daniel Goleman og teymi hans að uppsetningu á markþjálfunarlausnum fyrir bandarískan fyrirtækjamarkað. Hlutverk Sveins var að hanna árangursmælikerfin sem sýndu áhrifin af markþjálfuninni á starfsfólkið og reksturinn.

Eftir þá reynslu hefur markþjálfun og rekstur verið hornsteinn viðfangsefna Sveins og hefur hann síðan unnið sem markþjálfi, fyrirtækjaráðgjafi og verið meðstofnandi að fyrirtækjum í bæði Hollandi og Danmörku.

Árin 2022 og 2023 vann Sveinn sem ráðgjafi hjá fyrirtæki sem hefur á seinustu 20 árum veitt öllum helstu fyrirtækjum Hollands vinnustaðamarkþjálfun. Sú reynsla var innblástur fyrir stofnun Spiralup á Íslandi.

Sveinn Hróbjartsson